Pantanir og greiðslur
Hvernig panta ég?
Settu vörurnar í körfuna og farðu í greiðsluferlið. Þar velur þú afhendingarmáta og greiðslumáta og staðfestir pöntunina. Staðfesting berst í tölvupósti.
Hvaða greiðslumátar eru í boði?
Greiðslukort á öruggri greiðslusíðu Rapyd, og reikningsviðskipti fyrir fyrirtæki sem hafa fengið samþykkta umsókn.
Er kortanúmerið mitt vistað?
Nei. Kortaupplýsingar eru slegnar inn á greiðslusíðu Rapyd, sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðalinn. Við fáum aðeins staðfestingu á greiðslunni.
Eru verðin með virðisaukaskatti?
Nei. Verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og birt án virðisaukaskatts (VSK). Virðisaukaskatturinn bætist við í körfunni og samtala með VSK birtist áður en þú staðfestir pöntun. Flutningsgjald er ekki innifalið þegar vara er send – flutningsaðili innheimtir það við afhendingu vörunnar.
Hvað þýðir „Verð samkvæmt tilboði“?
Verð á vörunni fer eftir útfærslu og magni, svo hún er ekki seld beint í vefverslun. Sendu tilboðsbeiðni af vörusíðunni eða hringdu í 412 3000 og sölumaður gefur þér tilboð.
Ég finn ekki vöruna sem mig vantar
Sendu okkur fyrirspurn um varahlut með gerð vélar, raðnúmeri, vörunúmeri eða mynd af hlutnum. Við útvegum varahluti frá framleiðendum og látum þig vita um verð og afhendingartíma áður en pantað er.
Reikningsviðskipti og Mínar síður
Hver getur verslað í reikningsviðskiptum?
Fyrirtæki og aðrir lögaðilar, að undangenginni umsókn og samþykki. Sjá síðuna Viðskiptavinir.
Hvernig sæki ég um?
Fylltu út umsókn um reikningsviðskipti. Við förum yfir hana og þú færð tölvupóst þegar aðgangurinn er tilbúinn.
Hvað sé ég á Mínum síðum?
Pantanir, reikninga með PDF-afritum, hreyfingar og stöðu viðskiptareiknings, auk heimilisfanga og aðgangsupplýsinga.
Get ég merkt pöntun með verknúmeri?
Já. Fyrirtæki í reikningsviðskiptum geta merkt pantanir og fyrirspurnir með verknúmeri eða innkaupanúmeri.
Afhending
Get ég sótt pöntunina?
Já, á Selhellu 13 í Hafnarfirði á opnunartíma. Starfsfólk lætur vita í tölvupósti eða síma þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar – hafðu pöntunarnúmerið við höndina.
Hvað kostar að fá vöru senda?
Við afhendum samdægurs til flutningsaðila sé pantað fyrir kl. 13. Afhendum samdægurs til Póstsins sé pantað fyrir kl. 16. Flutningsgjald er innheimt af flutningsaðila samkvæmt verðskrá hans við afhendingu vörunnar.
Hvenær er pöntun afgreidd?
Á virkum dögum eins fljótt og auðið er. Sérpantaðar vörur geta tekið lengri tíma – áætlaður afhendingartími birtist á vörusíðu þar sem við á.
Sendið þið til útlanda?
Vefverslunin sendir aðeins innanlands. Hafðu samband ef þú þarft að fá vöru senda út.
Skil og ábyrgð
Get ég skilað vöru?
Neytendur geta fallið frá kaupum innan 14 daga frá afhendingu án þess að tilgreina ástæðu og skilað vörunni á eigin kostnað. Í viðskiptum milli fyrirtækja eru skil eftir samkomulagi. Sjá Skil og endurgreiðslur.
Get ég skilað sérpantaðri vöru?
Neytendur geta fallið frá kaupum á sérpantaðri vöru eins og annarri vöru, nema hún sé framleidd samkvæmt forskrift kaupanda eða beri skýrt auðkenni hans. Í viðskiptum milli fyrirtækja fæst sérpöntuðum vörum ekki skilað.
Varan er gölluð – hvað geri ég?
Láttu okkur vita sem fyrst í síma 412 3000 eða á sala@sturlaugur.is og gefðu upp pöntunarnúmerið. Við leysum málið í samræmi við skilmála og lög um neytendakaup eða lausafjárkaup.
Opnunartími og samband
Hvenær er opið?
Opið er mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00–16:30 og föstudaga kl. 08:00–15:00. Lokað um helgar.
Hvar eruð þið?
Á Selhellu 13, 221 Hafnarfirði. Leiðarlýsingu og kort finnurðu á síðunni Hafa samband.
Hvernig næ ég í ykkur?
Í síma 412 3000, á sala@sturlaugur.is eða með forminu á síðunni Hafa samband. Beinir símar starfsfólks eru á síðunni Starfsfólk.