Fara beint í efni

Um okkur

Sturlaugur Jónsson & Co og Marás hafa sameinað starfsemi sína og eru nú Sturlaugur Marás.

Í þjónustu við sjávarútveg og miklu meira

Sturlaugur Marás selur og þjónustar vélar, varahluti og tæknibúnað. Rætur okkar liggja í sjávarútvegi, þar sem Sturlaugur Jónsson & Co hefur þjónað fiskiskipaflotanum frá árinu 1925, en í dag leita einnig bændur, verktakar, iðnfyrirtæki og bílaáhugafólk til okkar.

Við leggjum metnað í að bjóða einungis viðurkenndan gæðabúnað sem stenst allar kröfur um endingu og áreiðanleika. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu af öllu sem viðkemur vélbúnaði bæði til sjós og lands. Við hjálpum þér að finna réttan hlut, hvort sem um er að ræða nýja aðalvél, túrbínu, ástengi eða lítinn slithlut.

Sturlaugur og Marás sameina krafta sína

Marás, vélar ehf. var stofnað árið 2005 og hefur byggt upp sterka stöðu í sölu og þjónustu á vélum og tæknibúnaði fyrir sjávarútveg. Marás er umboðsaðili Yanmar báta- og skipavéla á Íslandi og býður auk þess búnað frá þekktum framleiðendum á borð við ZF, Reintjes, Rehlko, Sleipner, Centa, NorSap auk fjölda annarra.

Í janúar 2026 keypti Sturlaugur Jónsson & Co félagið og flutti Marás á Selhellu 13 í Hafnarfirði þar sem félögin starfa saman sem Sturlaugur Marás og bjóða upp á breiðara vöruúrval, meiri þekkingu og góða þjónustu.

Frá Sturlaugi Jónssyni & Co til Selhellu 13

  1. 1925

    Sturlaugur Jónsson & Co stofnað Varahlutir fyrir fiskiskipaflotann voru frá upphafi kjarninn í starfseminni, og um áratugaskeið var fyrirtækið einnig umboðsaðili Heidelberg prentvéla.

  2. 2005

    Sameining við Véladeild Bræðranna Ormsson Hinn 1. mars sameinuðust Sturlaugur Jónsson & Co og Véladeild Bræðranna Ormsson undir nafni Sturlaugs. Þar með hófst þjónustan við landbúnað.

  3. 2005

    Marás, vélar ehf. stofnað Marás var stofnað í lok mars um sölu og þjónustu á vélum og tæknibúnaði fyrir sjávarútveg og er umboðsaðili Yanmar báta- og skipavéla á Íslandi.

  4. 2009

    Flutt að Selhellu 13 Núverandi eigendur kaupa reksturinn og flytja félagið að Selhellu 13 í Hafnarfirði þar sem fyrirtækið hefur verið æ síðan.

  5. 2026

    Sturlaugur Marás Sturlaugur Jónsson & Co kaupir Marás og flytur það á Selhellu 13 í Hafnarfirði. Nú starfa fyrirtækin saman á einum stað undir nýju nafni.

Til sjávar og sveita