Fara beint í efni

Skilmálar

Almennir viðskiptaskilmálar vefverslunar Sturlaugur - Marás ehf. – greiðslur, reikningsviðskipti, afhending og skil.

Efnisyfirlit

1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum og þjónustu í vefverslun Sturlaugur – Marás ehf., kt. 670201-3170, Selhellu 13, 221 Hafnarfirði (hér eftir „seljandi“). Áður en pöntun er staðfest hakar kaupandi við að hann hafi lesið og samþykki skilmálana og reglur um skil og endurgreiðslur.

Samningurinn er gerður á íslensku og um hann gilda íslensk lög. Seljandi varðveitir pöntunina og kaupandi fær staðfestingu hennar í tölvupósti; innskráðir viðskiptavinir sjá einnig pantanasögu sína á Mínum síðum. Í körfu og greiðsluferli getur kaupandi yfirfarið pöntunina og leiðrétt villur áður en hann staðfestir hana. Gildandi skilmálar eru ávallt birtir á þessari síðu.

2. Neytendur og fyrirtæki

Ef kaupandi er einstaklingur sem kaupir utan atvinnustarfsemi (neytandi) gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 16/2016 um neytendasamninga ásamt þessum skilmálum. Skilmálarnir skerða ekki þau réttindi sem lögin tryggja neytendum. Ef kaupandi er fyrirtæki eða kaupir í atvinnuskyni gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, með þeim frávikum sem leiðir af skilmálunum og samningi aðila.

3. Pantanir og samningsgerð

Samningur kemst á þegar kaupandi hefur staðfest pöntun og greitt með greiðslukorti, eða þegar pöntun í reikningsviðskiptum hefur verið staðfest. Kaupandi fær staðfestingu í tölvupósti. Seljandi getur hætt við pöntun eftir að samningur er kominn á ef varan reynist uppseld eða ef augljós villa er í verði eða birtingu vörunnar. Hafi greiðsla farið fram er hún þá endurgreidd að fullu án tafar. Þetta er með fyrirvara um rétt neytanda samkvæmt lögum nr. 48/2003.

4. Verð og vörulýsingar

Verð eru í íslenskum krónum og birt án virðisaukaskatts. Verð með virðisaukaskatti kemur fram á vörusíðu og heildarverð með virðisaukaskatti birtist í körfu og áður en pöntun er staðfest. Innskráðir viðskiptavinir í reikningsviðskiptum kunna að sjá verð samkvæmt sínum kjörum. Flutningsgjald við sendingu er ekki innifalið í verði, sbr. 7. grein.

Hverri vöru fylgir vörunúmer sem ræður því hvaða vara er seld. Seljandi áskilur sér rétt til að leiðrétta villur í verði, vörulýsingum og birgðastöðu. Myndir eru til viðmiðunar og geta vikið frá vörunni. Vörur merktar „Verð samkvæmt tilboði“ eru ekki seldar í vefverslun heldur er kaupanda gefið tilboð í þær.

5. Greiðsla með greiðslukorti

Greitt er með greiðslukorti á öruggri greiðslusíðu Rapyd. Greitt er í íslenskum krónum (ISK). Seljandi fær aldrei aðgang að kortanúmeri kaupanda og vistar það ekki. Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur verið staðfest; ef greiðsla tekst ekki er pöntunin ekki afgreidd.

6. Reikningsviðskipti

  • Reikningsviðskipti standa fyrirtækjum og öðrum lögaðilum til boða að undangenginni umsókn og samþykki seljanda. Seljandi getur óskað eftir upplýsingum til að meta umsókn og getur hafnað henni.
  • Samþykktir viðskiptavinir geta greitt pantanir gegn reikningi innan þeirrar lánsheimildar sem ákveðin er. Pöntun umfram heimild getur þurft sérstakt samþykki eða greiðslu með korti.
  • Reikningar eru gefnir út úr bókhaldskerfi seljanda og eru aðgengilegir á Mínum síðum ásamt hreyfingum og pantanasögu. Nema um annað sé samið er eindagi reiknings 10. dagur næsta mánaðar eftir útgáfu hans (líðandi mánuður + 10 dagar). Greiðslukjör hvers viðskiptavinar koma fram á Mínum síðum.
  • Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir samkvæmt 5. og 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá og með eindaga til greiðsludags, auk innheimtukostnaðar. Seljandi getur lokað fyrir reikningsviðskipti vegna vanskila eða ef forsendur breytast.
  • Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeim notendum sem hann veitir aðgang að Mínum síðum og á pöntunum sem gerðar eru í hans nafni.

7. Afhending

Vefverslunin afhendir eingöngu innan Íslands. Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum eins fljótt og auðið er. Áætlaður afhendingartími birtist á vörusíðu þar sem við á; sérpantaðar vörur geta tekið lengri tíma. Hafi ekki verið samið um annan afhendingartíma afhendir seljandi neytanda vöru án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 30 dögum eftir að pöntun var staðfest.

  • Sótt á Selhellu 13, 221 Hafnarfirði, á opnunartíma þegar tilkynning hefur borist um að pöntunin sé tilbúin. Ekkert gjald er tekið fyrir afhendinguna.
  • Sending með flutningsaðila – seljandi afhendir vöruna til flutningsaðila, sem innheimtir flutningsgjald af kaupanda samkvæmt eigin verðskrá við afhendingu vörunnar. Aukagjald er tekið fyrir sérferð á flug innanlands. Flutningsgjaldið er ekki innifalið í samtölu pöntunar og um flutninginn gilda skilmálar viðkomandi flutningsaðila.

Seljandi ber ábyrgð á því ef varan glatast eða skemmist áður en hún er afhent. Eftir afhendingu er varan á ábyrgð kaupanda; það hefur þó ekki áhrif á rétt hans vegna galla, sbr. 9. grein. Í neytendakaupum telst varan afhent þegar kaupandi, eða þriðji aðili sem hann tilnefnir annar en flutningsaðili, hefur tekið við henni, sbr. 7. og 14. gr. laga nr. 48/2003. Í viðskiptum milli fyrirtækja telst varan afhent þegar kaupandi sækir hana eða þegar hún er afhent flutningsaðila merkt kaupanda, sbr. 6., 7., 13. og 14. gr. laga nr. 50/2000.

8. Réttur til að falla frá kaupum og skil

  • Neytandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá því að hann, eða þriðji aðili sem hann tilnefnir, tók við vörunni, án þess að tilgreina ástæðu, sbr. 16. og 17. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Það gerir hann með tilkynningu til seljanda áður en fresturinn rennur út, t.d. í tölvupósti á sala@sturlaugur.is, á staðlaða uppsagnareyðublaðinu eða með annarri ótvíræðri yfirlýsingu.
  • Kaupandi skal skila vörunni á Selhellu 13 eða senda hana seljanda án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að hann tilkynnti að hann félli frá kaupum. Kaupandi ber beinan kostnað af því að skila vörunni. Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af annarri meðferð en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika hennar, einkenni og virkni; því er best að skila henni í upprunalegum umbúðum.
  • Seljandi endurgreiðir allar greiðslur sem kaupandi innti af hendi til seljanda vegna kaupanna án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning barst, með sama greiðslumiðli og notaður var nema um annað sé samið, kaupanda að kostnaðarlausu. Seljandi getur haldið endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist eða kaupandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send, hvort sem fyrr verður. Flutningsgjald sem kaupandi greiddi flutningsaðila er ekki endurgreitt, enda gat kaupandi sótt vöruna án gjalds á Selhellu 13, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga nr. 16/2016.
  • Rétturinn nær ekki til vöru sem er framleidd samkvæmt forskrift kaupanda eða ber skýrt auðkenni hans, sbr. c-lið 18. gr. laga nr. 16/2016. Vara sem er pöntuð sérstaklega fyrir kaupanda en er að öðru leyti óbreytt vara úr vöruúrvali seljanda fellur ekki undir þessa undantekningu.
  • Í viðskiptum milli fyrirtækja eru skil eingöngu heimil eftir samkomulagi. Seljandi getur krafist skilagjalds og sérpöntuðum vörum fæst ekki skilað.

9. Gallar og ábyrgð

Reynist vara gölluð skal kaupandi tilkynna seljanda það án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð gallans var eða mátti verða hans var. Neytendur njóta réttar samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup; frestur neytanda til að kvarta er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð gallans var, og kvörtun verður að berast innan tveggja ára frá afhendingu, eða fimm ára þegar hlut er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist, sbr. 27. gr. laganna. Í viðskiptum milli fyrirtækja gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, þar sem kvörtun verður að berast innan tveggja ára frá afhendingu, sbr. 32. gr., auk ábyrgðar framleiðanda eftir því sem við á.

Ábyrgð seljanda nær ekki til tjóns sem rekja má til rangrar notkunar, skorts á viðhaldi eða eðlilegs slits, né til ísetningar eða uppsetningar sem kaupandi eða aðrir á hans vegum annast, nema tjónið megi rekja til þess að nauðsynlegar upplýsingar um uppsetningu eða samsetningu fylgdu ekki vörunni.

10. Takmörkun ábyrgðar í viðskiptum milli fyrirtækja

Í viðskiptum við fyrirtæki ber seljandi ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, sbr. 2. mgr. 67. gr. laga nr. 50/2000, svo sem rekstrarstöðvun, aflatjóni eða tekjutapi, sem rekja má til galla eða tafa á afhendingu, og bótaábyrgð seljanda takmarkast við kaupverð vörunnar, nema tjón verði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis seljanda.

11. Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu seljanda.

12. Lög og varnarþing

Rísi ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann í sátt. Neytandi getur lagt ágreininginn fyrir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, island.is/v/kaerunefnd-voru-og-thjonustukaupa. Dómsmál milli seljanda og kaupanda sem er fyrirtæki skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Um varnarþing í málum neytenda fer eftir almennum reglum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

13. Gildistaka

Skilmálarnir gilda frá 27. nóvember 2026.

Síðast uppfært 27. nóvember 2026.