Neytendur – réttur til að falla frá kaupum
- Neytandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá því að hann, eða þriðji aðili sem hann tilnefnir, tók við vörunni, án þess að tilgreina ástæðu, sbr. 16. og 17. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Það gerir hann með tilkynningu til seljanda áður en fresturinn rennur út, t.d. í tölvupósti á sala@sturlaugur.is, á staðlaða uppsagnareyðublaðinu eða með annarri ótvíræðri yfirlýsingu.
- Kaupandi skal skila vörunni á Selhellu 13 eða senda hana seljanda án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að hann tilkynnti að hann félli frá kaupum. Kaupandi ber beinan kostnað af því að skila vörunni. Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af annarri meðferð en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika hennar, einkenni og virkni; því er best að skila henni í upprunalegum umbúðum.
- Seljandi endurgreiðir allar greiðslur sem kaupandi innti af hendi til seljanda vegna kaupanna án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning barst, með sama greiðslumiðli og notaður var nema um annað sé samið, kaupanda að kostnaðarlausu. Seljandi getur haldið endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist eða kaupandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send, hvort sem fyrr verður. Flutningsgjald sem kaupandi greiddi flutningsaðila er ekki endurgreitt, enda gat kaupandi sótt vöruna án gjalds á Selhellu 13, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga nr. 16/2016.
- Rétturinn nær ekki til vöru sem er framleidd samkvæmt forskrift kaupanda eða ber skýrt auðkenni hans, sbr. c-lið 18. gr. laga nr. 16/2016. Vara sem er pöntuð sérstaklega fyrir kaupanda en er að öðru leyti óbreytt vara úr vöruúrvali seljanda fellur ekki undir þessa undantekningu.
Fyrirtæki og reikningsviðskipti
Í viðskiptum milli fyrirtækja eru skil eingöngu heimil eftir samkomulagi og heimilt er að krefjast skilagjalds. Hafðu samband við sölumann áður en vöru er skilað.
Gallaðar eða rangar vörur
Reynist vara gölluð eða röng skaltu láta okkur vita án ástæðulauss dráttar frá því að þú varðst gallans var eða máttir verða hans var. Neytendur njóta réttar samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup; frestur neytanda til að kvarta er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð gallans var, og kvörtun verður að berast innan tveggja ára frá afhendingu, eða fimm ára þegar hlut er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist, sbr. 27. gr. laganna. Í viðskiptum milli fyrirtækja gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, þar sem kvörtun verður að berast innan tveggja ára frá afhendingu, sbr. 32. gr., auk ábyrgðar framleiðanda eftir því sem við á.
Ábyrgð seljanda nær ekki til tjóns sem rekja má til rangrar notkunar, skorts á viðhaldi eða eðlilegs slits, né til ísetningar eða uppsetningar sem kaupandi eða aðrir á hans vegum annast, nema tjónið megi rekja til þess að nauðsynlegar upplýsingar um uppsetningu eða samsetningu fylgdu ekki vörunni.
Svona skilar þú vöru
- Hafðu samband í síma 412 3000 eða á sala@sturlaugur.is og gefðu upp pöntunarnúmerið.
- Pakkaðu vörunni vel, helst í upprunalegar umbúðir.
- Komdu með hana á Selhellu 13 (mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00–16:30 og föstudaga kl. 08:00–15:00) eða sendu hana með flutningsaðila.
- Við staðfestum móttöku og göngum frá endurgreiðslu.
Nánar í skilmálum (8. og 9. grein).
Staðlað uppsagnareyðublað
Neytandi getur notað eyðublaðið hér að neðan til að falla frá kaupum, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 435/2016, en það er ekki skylda. Afritaðu textann í tölvupóst á sala@sturlaugur.is eða prentaðu hann út.
Staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að fallið sé frá samningi.
(fylltu út og sendu seljanda þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum)
- Til: Sturlaugur – Marás ehf., kt. 670201-3170, Selhellu 13, 221 Hafnarfirði, netfang: sala@sturlaugur.is
- Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á eftirfarandi vöru (*)/um veitingu eftirfarandi þjónustu (*): ______________________________
- Sem voru pantaðar hinn (*)/mótteknar hinn (*): ______________
- Nafn neytanda/neytenda: ______________________________
- Heimilisfang neytanda/neytenda: ______________________________
- Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er á pappírsformi): ______________________________
- Dagsetning: ______________
(*) Eyðið eftir því sem við á