Reikningsviðskipti
- Sérkjör – þín verð birtast þegar þú ert innskráð(ur).
- Greitt gegn reikningi – veldu „Reikningsviðskipti“ í greiðsluferlinu í stað kortagreiðslu.
- Yfirsýn – reikningar, PDF-afrit, hreyfingar og staða á Mínum síðum.
- Tilvísun á pöntun – merktu pantanir með verknúmeri eða innkaupanúmeri.
Reikningsviðskipti standa fyrirtækjum og öðrum lögaðilum til boða að undangenginni umsókn og samþykki. Pantanir eru greiddar gegn reikningi innan þeirrar lánsheimildar sem ákveðin er; greiðslufrestur fer eftir samningi.
Svona sækir þú um
Fylltu út umsókn með upplýsingum um fyrirtækið og tengilið. Við förum yfir hana og þú færð tölvupóst þegar aðgangurinn að Mínum síðum er tilbúinn.
Mínar síður
Á Mínum síðum sérðu pantanir, reikninga með PDF-afritum, hreyfingar og stöðu viðskiptareiknings. Skrá inn á Mínar síður
Tilboð og reikningar
Í vélar, búnað og stærri verkefni gerum við tilboð – hafðu samband við sölu í síma 412 3000 eða á sala@sturlaugur.is. Spurningar um reikninga og greiðslur má senda á sama netfang.