Sturlaugur Jónsson & Co og Marás hafa sameinað starfsemi sína. Nú horfum við til framtíðar undir nýju nafni — Sturlaugur Marás.
Sturlaugur Jónsson & Co hefur þjónað íslensku atvinnulífi frá árinu 1925, ekki síst sjávarútvegi með varahlutum og þjónustu fyrir fiskiskipaflotann. Marás, vélar ehf. var stofnað árið 2005 og er umboðsaðili Yanmar báta- og skipavéla á Íslandi. Í janúar 2026 keypti Sturlaugur Jónsson & Co Marás og flutti það á Selhellu 13 í Hafnarfirði, þar sem fyrirtækin starfa nú saman undir nýju nafni.
Við bjóðum vélar, varahluti, gíra, skrúfubúnað, túrbínur, ljósavélar, ástengi, þenslutengi, dælur, skipstjórastóla, mælitæki og sérlausnir.
Við erum á Selhellu 13, 221 Hafnarfirði. Aðalnúmerið er 412 3000 og almennar fyrirspurnir má senda á sala@sturlaugur.is. Opið er mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00–16:30 og föstudaga kl. 08:00–15:00. Lokað um helgar.
Á nýjum vef er vefverslun með vörum frá fjölda framleiðenda, og fyrirtæki í reikningsviðskiptum geta verslað á sínum kjörum á Mínum síðum. Nánar um reikningsviðskipti.
