Um þetta skjal
Hér er að finna upplýsingar um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar þú kaupir vörur í vefverslun Sturlaugs Jónssonar & co með aðsetur á Selhellu 13, 221 Hafnarfirði. Í þessari persónuverndarstefnu er fjallað um hvaða persónuupplýsingar við vinnum með í vefversluninni, tilgang vinnslunnar og heimildir fyrir henni, miðlun persónuupplýsinga og geymslutíma þeirra, auk ýmissa annarra atriða um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við vefverslunina.

Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henni
Til þess að við getum afgreitt þig í vefversluninni og veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á þurfum við að vinna með margs konar persónuupplýsingar, í ýmiss konar tilgangi og á grundvelli ólíkra heimilda. Þetta eru þær persónuupplýsingar sem við öflun beint frá þér en við öflum engra upplýsinga um þig annars staðar frá:

  • Tengiliðaupplýsingar, þ.e. nafn, heimilisfang og netfang: Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar svo hægt sé að tryggja að við sendum þær vörur sem eru keyptar á réttan stað, til að gefa okkur kost á að eiga í samskiptum um vörukaupin og til að tryggja að réttur viðskiptavinur sé skráður sem kaupandi, svo sem vegna reikningagerðar og ef kemur til vöruskila. Þá vinnum við einnig með þær vegna beinnar markaðssetningar ef þú hefur skráð þig á póstlista okkar til að fá tilboð frá okkur en við nýtum ekki upplýsingar um þig eða vörukaup þín til að semja slík tilboð og þau eru ekki að neinu leyti sniðin að þér. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin, sem og vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur, einkum vegna laga um neytendakaup, virðisaukaskatt og bókhald, auk þess að vera nauðsynleg til að veita þér framangreinda tilboðsþjónustu hafir þú skráð þig á póstlista til að njóta hennar. Við leggjum okkur fram um að lágmarka þær persónuupplýsingar sem við vinnum með um þig og af þeim sökum vinnum við ekki með upplýsingar um kennitölu þína.
  • Greiðsluupplýsingar: Við vistum aldrei greiðslukortanúmer þitt heldur gefum þér, þegar kemur að því að greiða fyrir vörur, samband við greiðslusíðu færsluhirðis þar sem þú slærð sjálf inn greiðslukortanúmer þitt og aðrar upplýsingar um það greiðslukort sem þú notar. Í staðinn fáum við frá færsluhirðinum staðfestingu á að skuldfærsla á greiðslukortið hafi tekist og þær upplýsingar vinnum við með í bókhaldslegum tilgangi. Því er okkur nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin og vegna lagaskyldu okkar, svo sem samkvæmt lögum um bókhald.
  • Upplýsingar um vörukaup þín hjá okkur, þ.e. hvaða vörur þú keyptir, hvenær og fyrir hvaða upphæð: Við vinnum með þessar upplýsingar, eins og með tengiliðaupplýsingarnar, sbr. hér að framan, í þeim tilgangi að geta selt og sent þér viðkomandi vörur og til að geta staðið við lagaskyldur okkar. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar annars vegar vegna samnings þíns og okkar og hins vegar vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur.

Miðlun persónuupplýsinga
Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna vefverslunarinnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:

  • Bókhaldsgögn eru afhent innlendum endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.
  • Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.

Geymslutími
Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við tengiliðaupplýsingar þínar ásamt upplýsingum um skráningu á póstlista á meðan þú ert skráður notandi vefverslunarinnar. Rétt er að ítreka að notendur geta afskráð sig hvenær sem er og lokað aðgangi sínum fyrirvaralaust.
Við vinnum með upplýsingar um vörukaup þín ásamt greiðsluupplýsingum, þ.e. skuldfærslustaðfestingar frá færsluhirði, í þann tíma sem okkur er skylt vegna ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.

Réttindi þín
Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú margs kyns réttindi sem mikilvægt er að þú vitir af:

  • Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
  • Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er [email protected].

Varnarþing
Rísi réttarágreiningur í tengslum við meðferð persónuupplýsinga vegna vefverslunar Hagkaups skal bera hann undir héraðsdóm Reykjanes.

Ábyrgðaraðili vinnslunnar og samskiptaupplýsingar
Sturlaugur Jónsson & Co , kt. 670201-3170, Selhellu 13, 221 Hafnarfirði, er ábyrgðaraðili þessarar vinnslu persónuupplýsinga og erindi sem tengjast vinnslunni er hægt að senda í tölvupósti á netfangið [email protected]
Þessi útgáfa persónuverndarstefnunnar er frá 1. september 2022 og fjallar um kaup í vefversluninni sem eiga sér stað eftir það.